Karlalið Þórs tryggði sér í gær sæti í úrvalsdeild karla í handbolta í fyrsta skipti frá árinu 2021 með stórsigri á B liði HK 37- 29, í lokaumferð 1. deildarinnar. Þórsarar léku vel í vetur og eru vel að deildarmeistaratitlinum komnir.
Borgarhólsskóli er Byrjendalæsisskóli en það er kennsluaðferð sem samþættir lestur, ritun, tal og hlustun með fjölbreyttri og skapandi vinnu út frá merkingarbærum textum í fyrsta til fjórða bekk
Nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla staðfesti nokkuð mun stærra en hver afstaða þjóðarinnar sé til ESB. Hún afhjúpaði efnahagslega og samfélagslega gjá sem hefur smám saman myndast milli höfuðborgarinnar og annarra landshluta. Niðurstaða kosninganna eftir kjördæmum leiddi þetta bersýnilega í ljós.
Námskeið sem Símey stendur fyrir gefur fólki 50 ára og eldra tækifæri til að kynnast gervigreind og læra hvernig hægt er að nota hana til að spara tíma, leysa verkefni og fá meira út úr tækninni.
Það er aldrei of oft undirstrikað hvers virði það er fyrir Verkmenntaskólann að geta leitað til atvinnulífsins og stofnana þegar kemur að hinum ýmsu námsgreinum – ekki síst varðandi verklegt nám.
Haustið er að koma á næstu vikum. Algjörlega frábær tími að mínu mati. Litbrigðin í náttúrunni verða örlítið dulmögnuð og einhver sérstakur bjarmi liggur yfir landinu. Haustið hefur alltaf verið tími uppskeru í mínu lífi. Það eru kannski fáir sem trúa því sem þekkja eða kannast við mig í dag að ég hafi verið ágætis íþróttamaður á yngri árum. Satt best að segja skil ég alveg að fólk setji spurningarmerki við þessa staðhæfingu mína miðað við ærslabelginn sem hefur safnast framan á maga minn síðan
„Við förum fram á að stjórnvöld láti vinna faglega þarfagreiningu án tafar og taki strax í kjölfarið skýra, tímasetta ákvörðun um hvernig tryggja skuli fólki á öllum aldri á Norður- og Austurlandi aðgang að öflugri, sérhæfðri og þverfaglegri endurhæfingu til framtíðar. Starfsfólk endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu SAk hefur þekkinguna, reynsluna og viljann til að taka fullan þátt í þeirri uppbyggingu.“
Svo segir í opnu bréfi frá starfsfólki sem stílað er til tveggja ráðherra, heilbrigðis- og fjármála sem og formanns fjárlaganefndar.
Frá 1. október verður hægt að taka strætó frá Akureyri til Dalvíkur og ná þaðan ferjunni Sæfara til Grímseyjar. Brottför ferjunnar frá Dalvík hefur verið færð til kl. 9.15 og er breytingunni ætlað að auðvelda farþegum að nýta almenningssamgöngur á leiðinni til Grímseyjar. Áður var þessi tenging ekki möguleg.