Þórsarar gerðu slæmt 1-1 jafntefli við Reyni S

Þórsarar tóku á móti Reyni frá Sandgerði á þriðjudagskvöldið og lyktaði leiknum með jafntefli 1-1.

Heimamenn í Þór hófu leikinn af krafti og áttu m.a. gott færi fljótlega þegar Einar Sigþórsson skallaði boltann í stöng Reynismanna og þaðan fór boltinn útaf. Einnig átti Hlynur Birgisson gott vinstrifótarskot sem sveif rétt framhjá markinu.

Leikmaður Reynis fékk síðan að líta aðra áminningu og því rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks fyrir brot á Hlyni Birgissyni.

Varnarmúr Reynis brotnaði þegar rúmlega hálftími var til leiksloka, Ármann Pétur Ævarsson skoraði þá gott mark eftir að hafa fengið boltann einn og óvaldaður inni í teig frá Einari Sigþórssyni.

Hins vegar gerðist ekki það sem flestir áttu von á, Reynismenn jöfnuðu stuttu síðar eftir klafs í vítateig Þórsara og var það eiginlega þeirra eina umtalsverða sókn í seinni hálfleik.

Þórsarar hafa nú ekki unnið deildarleik í 10 leikjum í röð, eða síðan þeir unnu Njarðvík 2-1 á Akureyrarvellinum 1. júní sl. Næsti leikur er einmitt gegn Njarðvík á útivelli.

Nýjast