Þórhallur Jónsson vill flýta undirbúningi vegna staðsetningar björgunarþyrlu LGH

Þórhallur Jónsson bæjarfulltrúi Akureyrarlistans
Þórhallur Jónsson bæjarfulltrúi Akureyrarlistans

Þórhallur Jónsson, bæjarfulltrúi Akureyrarlistans, vill að þegar verði hafist handa við undirbúning að staðsetningu björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Hann segir sorglegt að mannskætt sjóslys hafi þurft til að hreyfa við málinu, en fagnar jafnframt yfirlýsingu forsætisráðherra um fjármögnun fjórðu þyrlu gæslunnar. Þórhallur vill einnig að fyrirhuguð staðsetning þyrlupalls við Sjúkrahúsið á Akureyri verði endurskoðuð.

,,Ég færi aðstandendum þeirra sem létust í þessu sorglega slysi þegar Jökull sökk nú á miðvikudaginn mínar dýpstu samúðarkveður.

Eins ber að þakka þeim sem komu að hetjulegri björgun skipsverja, starfsmenn gæslunnar og aðrir fyrir vasklega framgöngu.

Forsætisráðherra sagði í morgun í kjölfar þessa slyss að fjórða þyrla landhelgisgæslunnar yrði fjármögnuð á þessu kjörtímabili, ásamt aðstöðu á Akureyrarflugvelli. Gott og vel, það er afskaplega sorglegt að þetta sjóslys og dauðsföll sem því fylgdu hafi þurft til að hreyfa við þessu mikilvæga máli að staðsetja björgunarþyrlu á Akureyri sem bæði gæslan og margir hafa bent á til fjölda ára að þörf sé á og þá háværastur og duglegastur þingmaður okkar Akureyringa Njáll Trausti Friðbertsson sem hefur verið óþreytandi í þessari baráttu.

Að ganga í takt.

Nú ef það á að staðsetja björgunarþyrlu á Akureyrarflugvelli þá þurfum við að hefja undirbúning strax fyrir það. Ísavía þarf að gera þær lóðir sem hægt er að úthluta á Akureyrarvelli byggingarhæfar eins og hefur verið þörf á í mörg ár og gæslan þarf að fá fjármagn til að reisa hér flugskýli og starfsmannaaðstöðu við hæfi líkt og forsætisráðherra lofaði í morgun. Þetta þarf að koma áður en að þyrla verður staðsett á Akureyri. (Þarna hefur ekki staðið á skipulagsyfirvöldum Akureyrarbæjar)

Við þurfum einnig að skoða þessu tengt að þyrlupallur við SAk verði EKKI gerður þar sem stendur til að staðsetja hann samkvæmt ný samþykktu skipulagi.

Heldur verðum við að staðsetja hann nær SAk og hef ég lagt til að við rífum Sel og staðsetjum þyrlupallinn þar. Ég hef fengið álit þyrluflugmanna gæslunnar sem eru sammála mér og eins benda allar skýrslur sérfræðinga frá Noregi til að sú staðsetning sé mun betri vegna fjarlægðar, þar sem ekki þurfi að ferja sjúkling yfir í sjúkrabíl með til heyrandi áhættu. Við þurfum að hlusta á þyrluflugmenn, lækna og aðra sérfræðinga þegar við ákveðum staðsetningu á þyrlupalli við SAk."

Nýjast