Um þessar mundir er Þjóðleikhúsið á ferð um landið og býður 5-6 ára börnum í leikhús. Í kynningu frá Þjóðleikhússtjóra kemur fram að Þjóðleikhúsið sé leikhús allra landsmanna og þessvegna hafi verið ákveðið að fara í leikferð og gefa börnum á landsbyggðinni tækifæri til að kynnast töfraheimi leikhússins.
Sýningin sem er á faraldsfæri um landið nefnist “Lofthræddi örninn Örvar” og s.l. miðvikudagsmorgun þyrptust um fimmtíu 5 og 6 ára börn úr Borgarhólsskóla og af Grænuvöllum í Samkomuhúsið á Húsvík á sýninguna. Í gær var svo fyrirhuguð sýning í Hnitbjöegum á Raufarhöfn fyrir börn frá Raufarhöfn, Öxarfirði, Þórshöfn og nágrenni.
Björn Ingi Hilmarsson leikstýrir verkinu og Oddur Júlíusson leikur öll hlutverkin, segir söguna með látbragði, söng, dansi og leik.
Vikudagur.is leit við í Samkomuhúsinu á Húsavík. Þar var þröng á þingi áður en hleypt var í salinn, en um leið og Oddur steig á svið hófst galdur leikhússins. Gott samband náðist á milli leikara og áhorfenda sem hlógu mikið og lifðu sig inn í sýninguna.
Sem sagt gott framtak og virðingarvert sem viðstaddir kunnu vel að meta. JS