Þingeyingum fjölgar umfram landsmeðaltal

Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga birtir á heimasíðu sinni yfirlit á nýútkomnum tölum frá Hagstofu Íslands um íbúafjölda.

Þar kemur fram að landmönnum hafði fjölgað þann 1. janúar sl. Um 1,8 prósent. Á sama tíma hefur þingeyingum fjölgað um 126 eða 2,6 prósent. Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem Þingeyingum fjölgar umfram landsmeðaltal.

Þá kemur fram að fólksfjölgunn dreifist ekki jafn yfir starfssvæði Atvinnuþróunarfélagsins og virðist sem iðnaðaruppbyggingin á Bakka ásamt vexti í ferðaþjónustu í suðursýslunni skýri þessa þróun. „Sú mikla fjölgun í dreifbýli í Norðurþingi sem fram kemur í tölunum skýrist af lögheimilisfesti þeirra sem starfa við uppbygginguna á Bakka en svæðið er utan skilgreindra þéttbýlismarka Húsavíkur,“ segir á heimasíðu félagsins.

Einnig kemur fram að samdráttur í sjávarútvegi, einkum uppsjávarveiðum og vinnslu, ásamt einhæfni í atvinnulífi og fábreytni í þjónustu, skýrir væntanlega að mestu þá fækkun sem fram kemur austast á svæðinu.

Á töflunni hér fyrir neðan sem fengin var af vef Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga má sjá greiningu á þessum tölum eftir sveitarfélögum og skilgreindum þéttbýlisstöðum á svæðinu:

 

2016

2017

Breyting

Norðurþing

2.825 2.963 138 4,9%
 – þar af Húsavík 2.182 2.196 14 0,6%
 – þar af Kópasker 124 109 -15 -12,1%
 – þar af Raufarhöfn 189 173 -16 -8,5%
 – þar af dreifbýli 330 485 155 47,0%

Skútustaðahreppur

408 425 17 4,2%
 – þar af Reykjahlíð 163 166 3 1,8%
 – þar af dreifbýli 245 259 14 5,7%

Tjörneshreppur

60 59 -1 -1,7%

Þingeyjarsveit

918 915 -3 -0,3%
 – þar af Laugar 122 106 -16 -13,1%
 – þar af dreifbýli 796 809 13 1,6%

Svalbarðshreppur

99 95 -4 -4,0%

Langanesbyggð

505 484 -21 -4,2%
 – þar af Þórshöfn 350 346 -4 -1,1%
 – þar af Bakkafjörður 85 77 -8 -9,4%
 – þar af dreifbýli 70 61 -9 -12,9%
Samtals 4.815 4.941 126 2,6%

Nýjast