Teljari settur upp í Dimmuborgum

Stefáni Jeppesen við nýja mælinn.
Stefáni Jeppesen við nýja mælinn.

Settur var upp teljari í Dimmuborgum í Mývatnssveit nýverið. Hann telur alla þá sem ganga inn um aðalhliðið niður í borgirnar. Fyrir var teljari sem telur bíla sem koma í Dimmuborgir. Davíð Örvar Hansson, sérfræðingur Umhverfisstofnunar í Mývatnssveit, segir að samkvæmt fyrstu tölum hafi um 100 ferðamenn notið náttúrufegurðar Dimmuborga kvöldið eftir að mælirinn var settur upp.

Mælirinn er færanlegur og er ætlað að gefa upplýsingar um fjölda fólks á friðlýstum svæðum á vegum Umhverfisstofnunar. Byrjað er í Dimmuborgum en svo fer mælirinn á flakk.

„Upplýsingarnar nýtast til að sjá hvenær fólk er flest í Dimmuborgum. Við getum nýtt þær upplýsingar til að ákvarða hvenær við viljum hafa landvörð á svæðinu, hvenær við viljum bjóða upp á fræðslugöngur til að ná til sem flestra og ekki síst mun koma í ljós hvenær mannfjöldaálag fer að valda neikvæðum áhrifum á náttúrufar, t.d. ef gróðurþekja við stígana fer að rofna,“ segir Davíð Örvar Hansen. Samkvæmt mælingum lögðu yfir 350.000 manns leið sína í Dimmuborgir á síðasta ári.

Nýjast