Sá óheppilegi atburður varð á fimmtudag að Ford GT sportbíl Brimborgar - sem var á Akureyri í tilefni bíladaga - var ekið útaf og utan í umferðarskilti við hringtorgið hjá Byko á þjóðvegi 1. Ökumaður var starfsmaður Brimborgar sem var að ferja bílinn í þrif fyrir sýningu á bíladeginum á Akureyri þann 17. júní. Sem betur fer urðu ekki slys á fólki.
Sagt er frá þessu á heimasíðu Brimborgar og greint frá viðbrögðum fyrirtækisins við atburðum sem þessum.
Þar segir meðal annars: "Ford GT sportbíllinn var meðal annars fluttur hingað til lands í þeim tilgangi að beina sjónum ökumanna að þeirri ábyrgð sem þeir bera sem stjórnendur ökutækis í umferðinni. Hefur Brimborg frá upphafi lagt áherslu á markmið sitt í þessu sambandi undir slagorðinu: „Beislum kraftinn af ábyrgð"." Er bent á að í þessu tilfelli hafi ökuferðin á svo kraftmiklum bíl ekki einkennst af ábyrgð. Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar segir m.a.: "Brimborg hefur frá upphafi viðhaft mjög skýrar reglur um notkun Ford GT enda er hér um að ræða ofuröflugan og léttan sportbíl með yfir 500 hestafla vél, sem aka þarf með sérstakri varúð. Í umræddri ökuferð var ekki um hraðakstur að ræða heldur vankunnáttu á því gríðarlega afli sem bíllinn býr yfir, og vanmat á þeim aðstæðum sem fyrir hendi voru. Að þessu sinni var krafturinn því miður ekki beislaður af ábyrgð - með öðrum orðum nægilegri varfærni sem nauðsynleg er þegar um bíl er að ræða sem maður þekkir ekki og er að aka í fyrsta sinn. Ökumanni bílsins, starfsmanni Brimborgar, hefur þegar verið boðin áfallahjálp."
Bíllinn skemmdist það mikið að ekki þótti hægt að hafa han á sýningunni og var han settur í gám og fluttur suður til viðgerða.
Sjá einnig: www.brimborg.is