Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt gjaldskrárbreytingar fyrir árið 2018 en þar má sjá hækkanir á ýmsum sviðum. Meðal annars hækkar miðaverð í sundlaugar á Akureyri. Þannig mun stakur sundmiði fyrir fullorðna hækka um 50 krónur og kostar sundmiðinn eftir áramót 950 kr. Sundmiðinn hefur því hækkað um 350 kr. á þremur árum, en árið 2015 kostaði stakur miði 600 kr.
Einnig hækkar stakur sundmiði fyrir börn um 50 krónur og kostar 250 kr. Þá hækkar verð á 30 miða korti fyrir fullorðna um þúsund krónur og kostar 13.000 kr. eftir áramót. Miðaverð fyrir eldri borgara helst óbreytt og einnig árskort fyrir fullorðna.
Skólamáltíðir hækka
Sú breyting verður á gjaldskrá í leik-og skólavistun bæjarins að annað barn í vistun fær 50% afslátt en var áður 30%. Hins vegar eru hækkanir í bæði vistun og fæði. Sem dæmi hækkar fullt fæði á leikskólum um 210 krónur á mánuði og skráningargjald í skólavistun hækkar um tæpar 200 kr. Þannig kostar annaráskrift að mat 433 kr. máltíðin en stök máltíð kostar 582 kr.
Óbreytt gjald í Hlíðarfjall
Gjaldskrá í Hlíðarfjall helst tiltölulega óbreytt á milli ára. Fulltrúar minnihlutans lögðu fram tillögur um að gjaldskrá skólavistunar/frístundar í grunnskólum verði óbreytt milli ára, sem og gjald á 12 mánaða korti 6-17 ára í sundlaugar Akureyrarbæjar og lagði til að lyftumiðar í Hólabraut fyrir börn 6-17 ára lækki úr 950 kr. í 550 kr, en tillögurnar voru felldar.