Súlur Vertical Skíðagangan, sem áður var þekkt sem Hermannsgangan, fer fram laugardaginn 25. janúar og er einstakt tækifæri fyrir áhugafólk á öllum aldri og getustigum til að taka þátt í skíðagöngukeppni. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn, hraður eða hægur, ungur eða aldinn, þá er þessi keppni vettvangur fyrir þig!
Hluti af Súlur Vertical þríleiknum
Skíðagangan markar upphafið að Súlur Vertical þríleiknum, sem sameinar þrjár ólíkar íþróttagreinar á árinu 2025. Þríleikurinn veitir þátttakendum tækifæri til að upplifa fjölbreyttar áskoranir í hinni stórbrotnu náttúru Norðurlands. Þau sem ljúka öllum viðburðum þríleiksins fá sérstaka viðurkenningu sem afhend verður í miðbæ Akureyrar að loknum síðasta viðburðinum.
Dagskrá þríleiksins:
Þátttaka og skráning
Þeir sem vilja taka þátt í skíðagöngunni um helgina geta tryggt sér sæti með því að skrá sig á Súlur Vertical | Netskraning.is. Keppnin hefst klukkan 12:00 laugardaginn 24.janúar og er ætlað að skapa gleði og samstöðu fyrir alla sem mæta.
Vertu með í Súlur Vertical þríleiknum 2025 og upplifðu á Akureyri!
Frekari upplýsingar má finna á www.sulurvertical.is
Frá þessu segior í tilkynningu frá mótshöldurum