Gámaeiningar munu hýsa skrifstofur við SAk

Séð yfir SAk svæðið sem um ræðir er til vinstri
Séð yfir SAk svæðið sem um ræðir er til vinstri

Sjúkrahúsið á Akureyri hefur óskað eftir leyfi til að setja niður þrjár skrifstofugámaeiningar á svæði norðan við gömlu þvottahúsbyggingu sjúkrahússins. Óskað er eftir því að gámaeiningin fái að standa næstu fimm ár eða þar til viðbygging sjúkrahússins er tilbúinn.

Umsóknin var tekin fyrir í skipulagsráði sem gerði ekki athugasemdir við erindið og taldi að um svo óverulegt frávik væri að ræða að ekki væri þörf á að breyta deiliskipulagi.

Nýjast