Um miðjan dag í gær framkvæmdi lögreglan á Akureyri leit í einbýlishúsi á Grenivík og stöðvaði þar kannabisræktun. Frá þessu greinir lögreglan á Facebook. Þar voru í ræktun um 50 plöntur auk þrjátíu græðlinga. Þá var lagt hald á rúmlega tvö kíló af maríjúna. Þar var um að ræða efni sem búið var að uppskera og þurrka af plöntum sem höfðu verið í ræktun á sama stað og tilbúið til dreifingar.
Einn maður var handtekinn innandyra og játaði hann við skýrslutökur að hafa staðið að ræktuninni og að hafa ætlað að selja afraksturinn.
Fyrir mánuði síðan stöðvaði lögreglan á Akureyri aðra kannabisræktun, sú var í iðnaðarhúsnæði á Akureyri. Þar voru í ræktun 40 kannabisplöntur og svipað magn græðlinga. Þær plöntur sem voru lengst komnar í ræktun voru mjög stórar, enda umbúnaðurinn í kringum ræktunina mikill. Einn maður var handtekinn innandyra en lögreglan hefur síðan tekið skýrslur af tveimur í viðbót.
Auk þessara mála komu 20 fíkniefnmál upp hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í apríl þar sem lagt var hald á töluvert af marijuana, en einnig amfetamín, kókaín og e-töflur. Í apríl voru 22 ökumenn stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímsvarann 800-5005 þar sem hægt er að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnabrot og einnig netfangið info@rls.is