Sterk staða í Eyjafjarðarsveit og stór verkefni framundan

Eyjafjarðarsveit.
Eyjafjarðarsveit.

Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2018 og árin 2019­2021 var tekin til síðari umræðu og sam­þykkt samhljóða á síðasta sveitarstjórnarfundi. Í tilkynningu segir að áætlunin endurspegli sterka stöðu og ábyrgan rekstur Eyjafjarðarsveitar og gerir sveitarfélaginu kleift að leggja í fjárfestinga­ og viðhaldsverkefni án lántöku.

Helstu framkvæmdir ársins 2018 er nýr hjóla­ og göngustígur, ljósleiðari og uppbygging Hrafnagilshverfis. Á árinu 2017 hefur verið unnið við
uppbyggingu hjóla­ og göngustígs milli Hrafnagilshverfis og Akureyrar en gert er ráð fyrir að stígurinn verði tilbúinn í byrjun sumars 2018. Verkefnið er unnið af Eyjafjarðarsveit með stuðningi Vegagerðarinnar.

Á árinu 2018 verður lokið við lagningu ljósleiðara um allt sveitarfélagið og geta þá öll heimili í sveitinni tengst ljóðleiðara eða ljósneti. Við Bakkatröð í Hrafnagilshverfi eru nú í byggingu 19 íbúðir semvæntanlega verða allar tilbúnar á árinu 2018. Eyjafjarðarsveit hefur undirritað viljayfirlýsing um kaup á einni íbúð í hverfinu. Sumarið 2018 verður sá hluti Bakkatraðar sem er í uppbyggingu nú malbikaður og gengið verður frá gangstéttum

Nýjast