„Þetta lítur alveg sæmilega út,“ segir Bergvin Jóhannsson, bóndi á Áshóli í Grýtubakkahreppi í Eyjafirði, aðspurður um kartöfluuppskeru í haust en hann er formaður Landssambands kartöflubænda. Útlitið er nokkuð gott en aðal upptökumánuðurinn er í september. „Við erum bara farnir að taka upp til að setja á markað hérna fyrir norðan,“ segi Bergvin.
Uppskeran í fyrra var með betra móti og árið 2015 var hún einnig mjög góð og telur Bergvin að framhald gæti orðið á því. „Þetta er kannski ekki svo ólíkt og í fyrra, heldur minna mundi ég segja en það verður svipað held ég þegar kemur fram í næsta mánuð sem er nú upptökumánuðurinn.“ Það stefnir því í þriðja góða kartöflusumarið í röð.