Í drögum að nýju aðalskipulagi Akureyrarbæjar er gert ráð fyrir því að miðbærinn verði stækkaður þannig að svæðið neðan Samkomuhússins og Akureyrarvöllur verði skilgreind sem miðbæjarsvæði. Einnig vilja bæjaryfirvöld setja hömlur á að verslunar- og skrifstofuhúsnæði sé breytt í gistirými í miðhluta miðbæjarins og að halda þurfi í einkenni gamalla húsa.
Í greinargerðinni segir að með því að svæði miðbæjarins stækki og nái til svæðisins neðan Samkomuhússins og Akureyrarvallar skapist auknir möguleikar á nýtingu þessara svæða. Þó hefur ekki verið skoðað nánar hvernig svæðin verður nýtt. Þá segir í greinargerðinni að í miðbænum séu nokkur af elstu húsum bæjarins og halda þurfi í einkenni gamalla húsa og gera það í samræmi við reglugerðir um húsvernd. „Miðbæir hafa almennt félagslegt, listrænt og menningarsögulegt gildi og þar eru yfirleitt rætur bæjanna með gamlar byggingar. Það er því mikilvægt að hlúa að miðbæ Akureyrar og gæta uppruna hans, umhverfis og verðmætis fyrir bæinn,“ segir í greinargerð. Þá er gert ráð fyrir fjölgun íbúða og auknu atvinnuhúsnæði sem stuðli að blöndun íbúa og atvinnustarfsemi. Einn megintilgangur þess er að nýta það opna landrými sem er á milli miðbæjarins og Pollsins.
Stilla fjölda hótela og gistiheimila í hóf
Í greinargerðinni segir að hóflegur fjöldi hótela og gistiheimila í miðbænum sé æskilegur. Þau skapi undirlag ferðamanna fyrir kaffihús og veitingastaði, ásamt ferðamannaverslunum, en draga ekki Akureyringa í miðbæinn. „Þau taka einnig pláss frá íbúðum og þjónustustarfsemi í miðbænum og fækka þannig þeim Akureyringum sem búa eða starfa í miðbænum. Á miðsvæðum skal fyrst og fremst gera ráð fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi og stjórnsýslu sem þjónar heilu landsvæði, bænum í heild sinni eða fleiri en einu bæjarhverfi, s.s. verslunum, skrifstofum, þjónustustofnunum, veitinga- og gistihúsum, menningarstofnunum, bílastæðahúsum og hreinlegum iðnaði,“ segir í greinargerðinni.