Snorri Óskarsson, stundum kallaður Snorri í Betel, hefur stefnt Akureyrarbæ og krefst vangoldinna launa og miskabóta vegna ólöglegrar uppsagnar hans úr starfi. Hann telur Loga Már Einarsson, formann Samfylkingarinnar vera manninn á bak við aðför að sér. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag
Sjá einnig: Snorri í Betel hafði betur gegn Akureyrarbæ
Forsaga málsins er sú að Snorri skrifaði umdeilda bloggfærslu út frá sínu strangkristna hugarfari. Honum var í kjölfarið vikið úr starfi grunnskólakennara, í júlí árið 2012. Bæjaryfirvöld á Akureyri töldu ekki eðlilegt að kennari grunnskólabarna léti í ljós skoðanir sínar opinberlega þess efnis að samkynhneigð væri synd og samkynhneigðum biði ekkert nema helvíti.
Þá sakar Snorri Loga Má, formann Samfylkingarinnar um að vera mannin á bak við aðförina að sér m.a. vegna þess að Logi Már hafi fyrstur tjáð sig um uppsögnina og fagnað henni opinberlega. Þá bendir Snorri á að eiginkona Loga Más verji Akureyrarbæ í málinu sem Snorri rekur nú gegn bænum. „Þetta er því alfarið hans arkitektúr,“ segir Snorri í samtali við Fréttablaðið
Þessum ummælum vísar Logi Már á bug og bendir á að hann hafi ekki verið í meirihluta þegar Snorri var rekinn og beri því enga ábyrgð á uppsögn Snorra eða hvernig að henni var staðið.
Uppsögnin hefur síðan verið dæmd ólögmæt og krefst því Snorri bæði ógreiddra launa í tvö og hálft ár auk tapaðra lífeyrisréttinda. Einnig óskar hann launa næstu fimm árin, eða til sjötugs ef hann fær ekki vinnu.