11. febrúar, 2016 - 17:10
Snorri Óskarsson. Mynd/Þröstur Ernir
Hæstiréttur dæmdi í dag Snorra Óskarssyni, oftast kenndan við Betel, í vil í máli vegna uppsagnar hans sem grunnskólakennara á Akureyri. Akureyrarbær verður að greiða málskostnað sinn og Snorra. Snorri leitaði til innanríkisráðuneytisins eftir uppsögn sína. Niðurstaða þess var að uppsögnin hefði verið ólögmæt. Bæjaryfirvöld á Akureyri sættu sig ekki við þá niðurstöðu og höfðuðu dómsmál til að fá úrskurðinum hnekkt. Bærinn tapaði málinu á báðum dómsstigum, fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra í haust og í Hæstarétti í dag.
Þetta kemur fram í frétt á
Rúv.
Málið má rekja til ummæla sem Snorri lét falla á vefsíðu sinni um samkynhneigð. Hann sagði meðal annars að samkynhneigð teldist vera synd og að laun syndarinnar væru dauði. Akureyrarbær og Snorri tókust á um túlkun orðanna, hvort þau ætti að skilja sem svo að refsa ætti samkynhneigðum með dauða, túlkun sem Snorri andmælti. Hann var áminntur og sendur í sex mánaða leyfi og síðan sagt upp störfum. Hann kærði uppsögnina til innanríkisráðuneytisins.