Slegið í gegn í Vaðlaheiðargöngum í dag

Mynd/Valgeir Bergmann
Mynd/Valgeir Bergmann

Í dag verður slegið í gegn í Vaðlaheiðargöngum en einungis þrír metrar eru eftir að bora. Eftir síðustu sprenginguna mun verktakinn bjóða gestum og gangandi að líta við á verkstæði Ósafls í Eyjafirði og kynna sér þær áskoranir sem jarðgangamenn hafa tekist á við. Fólki verður m.a. boðið að skoða tæki og tól á verkstæðinu milli kl. 16-19.  „Gestum gefst þar einstakt tækifæri til að kynna sér jarðgangagerð,“ segir á Facebook síðu Vaðlaheiðarganga. 

Nýjast