Skrifstofa Neytendasamtakanna opna á Akureyri

Brynhildur Pétursdóttir er aftur farin að gæta hagsmuna neytenda. Mynd: Þröstur Ernir
Brynhildur Pétursdóttir er aftur farin að gæta hagsmuna neytenda. Mynd: Þröstur Ernir

Neytendasamtökin opna skrifstofu á Akureyri innan skamms. Brynhildur Pétursdóttir fyrrverandi Alþingismaðurmun vera í forsvari fyrir nýju skrifstofunni ásamt því að ritstýra Neytendablaðinu og hafa umsjón með heimasíðu samtakanna.

Brynhildur starfaði lengi hjá samtökunum og sat í stjórn þeirra áður en hún tók sæti á Alþingi og veitti m.a. forstöðu skrifstofu samtakanna á Akureyri.

„Neytendasamtökin starfa á landsvísu og opnun skrifstofunnar á Akureyri er mikilvægt skref að því markmiði að veita öllum félagsmönnum, sama hvar þeir búa á landinu, sem besta þjónustu. Brynhildur Pétursdóttir hefur mjög góða yfirsýn yfir málefni og hagsmunamál neytenda. Hún býr yfir umfangsmikilli reynslu bæði af vettvangi Neytendasamtakanna og á Alþingi Íslendinga. Hún er öflugur liðsmaður í baráttunni fyrir réttindum og hagsmunum neytenda,“ segir á heimasíðu Neytendasamtakanna.

Neytendasamtökin ráku árum saman skrifstofu á Akureyri en henni var lokað fyrir nokkrum árum. Nú er sem sagt búið að ganga frá því að skrifstofa opni á nýjan leik á Akureyri. Innan skamms verður greint frá opnunartíma skrifstofunnar á heimasíðu samtakanna.

Nýjast