Á aukafundi bæjarstjórnar Akureyrarbæjar í gær var lýst yfir miklum vonbrigðum með það fjármagn sem ætlað er til heilbrigðismála á Norðurlandi í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi. Í sáttmála ríkisstjórnarinnar er sérstök áhersla lögð á heilbrigðismál og að allir landsmenn óháð búsetu eigi að njóta góðrar þjónustu í heilbrigðiskerfinu.
„Það skýtur því skökku við að Sjúkrahúsið á Akureyri skuli aðeins fá 47 milljónir í raunaukningu til reksturs eða um 0,6%, þegar það liggur fyrir að aukin þjónustuþörf hefur verið á bilinu 2-4% árlega undanfarin ár. Þetta þýðir að það vantar allt að 100 milljónum króna í almennan rekstur svo SAk geti veitt íbúum á þjónustusvæði sínu nauðsynlega þjónustu.
Í þessu sambandi vill bæjarstjórn benda á að á liðnum árum hafa stjórnendur og starfsfólk SAk sýnt mikið aðhald og ráðdeild í rekstri og því er full ástæða til að taka fullt mark á ábendingum þeirra sem fram hafa komið síðustu daga. Þá leggur bæjarstjórn ríka áherslu á að samhliða uppbyggingu á húsnæði Landspítalans verði hafist handa við byggingu nýrrar legudeildarálmu við SAk.
Það vekur einnig furðu að í frumvarpi til fjárlaga skuli vera komin fram hagræðingarkrafa á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á sama tíma og það liggur fyrir að þjónustuþörfin hefur aukist verulega og framlög eru aukin til heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarstjórn hvetur þingmenn kjördæmisins og ráðherra fjármála og heilbrigðismála til þess að standa fyrir breytingum á fjárlagafrumvarpinu svo snúa megi þessari þróun við sem er í hrópandi mótsögn við stefnu ríkisstjórnarinnar sem birtist í nýsamþykktum sáttmála hennar,“ segir í bókun.
Hjúkrunaráð og læknaráð SAk hafa þungar áhyggjur
Stjórnir hjúkrunarráðs og læknaráðs Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) lýsa sömuleiðis yfir vonbrigðum og þungum áhyggjum af ófullnægjandi fjárframlagi til Sjúkrahússins á Akureyri í fjárlagafrumvarpi ársins 2018.
Í yfirlýsingu sem birtist á heimasíðu SAk segir að stjórnirnar telji að það geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir starfsemi og stöðu sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu.
„Sjúkrahúsið á Akureyri er annað tveggja sjúkrahúsa á landinu sem veita sérhæfða sjúkrahúsþjónustu og hið eina utan höfuðborgarsvæðisins. Mikilvægt er að íbúar geti sótt sérhæfða sjúkrahúsþjónustu nærri sinni heimabyggð. Það er hagræði af því fyrir sjúklinga, aðstandendur og þjóðina. Að óbreyttu munu fyrirhuguð fjárframlög leiða til skerðingar á þjónustu við íbúa á Norður- og Austurlandi sem og landinu öllu.
Fagráð hjúkrunarfræðinga og lækna á SAk skora á Alþingi að bregðast við og veita frekari fjármunum til Sjúkrahússins á Akureyri til að tryggja að hægt sé að veita fullnægjandi heilbrigðisþjónustu með öryggi sjúklinga að leiðarljósi.“