Skíðasvæðin á Norðurlandi í samstarf við ferðaþjónustuna

Hlíðarfjall á Akureyri.
Hlíðarfjall á Akureyri.

Markaðsstofa Norðurlands ásamt skíðasvæðunum fimm á Norðurlandi hafa tekið höndum saman og boðið 40 ferðaþjónustuaðilum í svokallaða 5x skíðaferð í gegnum verkefnið Ski Iceland. Verkefnið felst í að boðið er upp á 5x5 skíðapassa sem þýðir að handhafar passans geta skíðað á öllum fimm skíðasvæðunum á Norðurlandi á fimm dögum; nú eða verið á einu skíðasvæði í fjóra daga og einn dag á öðru. Skíðasvæðin sem taka þátt í verkefninu eru: Tindastóll á Sauðárkróki, skíðasvæðið í Skarðsdal, Siglufirði, Tindaöxl, Ólafsfirði, Böggisstaðafjall, Dalvík og Hlíðarfjall, Akureyri.

Fimmtudaginn 7. apríl fóru 40 aðilar sem tengjast ferðaþjónustu beint og óbeint að skoða og prófa skíðasvæðin á Norðurlandi og tókst það vel til. Skíðað var á þremur svæðum, Akureyri, Siglufirði og Sauðárkrók. Aðstæður voru ágætar og samstarf skíðasvæða á Norðurlandi stóð fyrir sínu. Sérstakar vörur eru til sölu hjá skíðasvæðunum sem innifela passa sem virka á öllum svæðunum og svo er einnig hægt að leigja búnað og skila á hvað svæði sem er. 

Nýjast