Hún var ófögur sjónin sem blasti við starfsfólki leikskólans Hulduheima á Akureyri í morgun. Búið var að vinna skemmdarverk á skólalóðinni en m.a. voru rifin upp öll blóm á svæðinu og dreift um lóðina. Eydís Elva Guðmundsdóttir, staðgengill leikskólastjóra Hulduheima, segir starfsfólki hafi blöskrað aðkoman í morgun þegar sjónin blasti við þeim og þetta sé sorglegt mál.
„Þetta er leiðinleg uppákoma og fátt ömurlegra en að skemma fyrir leikskólabörnum," segir Eydís. Hún segir þetta ekki í fyrsta sinn sem skemmdarverk séu unnin á leikskólanum og t.d. hafi leikskólinn aldrei geta haft kartöflur eða aðra ræktun þar sem það er iðulega eyðilagt. Blómin höfðu hins vegar fengið frið í sumar þar til nú.
Eydís segir að grunur leiki á því að krakkar sem hópist á leikskólann á kvöldin hafi unnið skemmdarverkin. Leikskólinn sé opið svæði og þar komist allir inn.
"Við viljum vekja athygli á þessu í von um að skemmdarvargarnir sjái að sér og geri þetta ekki aftur."