Á kaffistofu Skarps líta gjarnan við góðir gestir úr öllum þrepum samfélagsins. Spinnast oftar en ekki upp fróðlegar og skemmtilegar umræður. Hér verða nokkrar þeirra reifaðar.
Það var gestkvæmt á kaffistofunni í vikunni sem er að líða. Þegar svo ber undir er ritstjórinn yfirleitt í essinu sínu og skrafhreifinn með eindæmum.
Einn daginn sagði ritstjórinn sögu af því þegar hann var við efnisöflun í Vikurblaðið sáluga árið 1979. Ákveðið var að taka viðtal við Benedikt heitinn Jónsson (hann var reyndar ekki heitinn þá) gjarnan kallaður Bubbi Speni en hann var áberandi í öllum félagsstörfum á Húsavík. Í viðtalinu segir hann frá því að hann hafi verið eins og Stalín, því hann var formaður í svo mörgum nefndum og ráðum.
Hann sagði að úr því hann hafi aldrei kvænst og eignast börn þá hefði hann svo mikinn tíma á herðum sér að honum bæri skylda til að sinna samfélaginu í staðinn.
Einum viðstaddra á kaffistofunni varð þá strax að orði: „Nú, það má þá segja að Hjálmar Bogi sé Bubbi Speni 21. aldarinnar.“
Mikill mektarmaður birtist á dögunum á kaffistofu Skarps og var mikið niðri fyrir. Hann hafði verið á göngu við gámasvæði Eimskipa við Hafnargarð þegar hann rekur augun í gám merktan verslunarrisanum Costco.
Þegar hann kemur heim fer hann að ræða þetta við son sinn og spyr hvort þetta hljóti ekki að þýða að verslunin hyggist opna útibú á Húsavík. Sonurinn er ekki sannfærður og segir að líklega hafi einhver Húsvíkingurinn verið á ferð sunnan heiða, rekið nefið inn í téða verslun og verslað yfir sig.
Eitthvað lét sólin sjá sig í vikunni en við slík tilefni tekur ritstjórinn sér gjarnan stöðu úti við suðurgafl höfuðstöðva Skarps. Þetta gerir hann til að fá innblástur og D-vítamín. Þessi D-vítamín inntaka ritstjórans var trufluð á dögunum þegar mikill listamaður kom hálf haltrandi að og heilsaði upp á hann. Þarna var á ferðinni Hörður Þór Benónýsson eða Höddi Ben, bóndi, múrari og leikskáld frá Hömrum í Reykjadal.
Hann fær sér sæti hjá ritstjóranum, fiktar við tóbakspung sinn og segir svo í óspurðum fréttum að nú sé það ljótt. Ritstjórinn sperrir upp eyrun og spyr hvað sé nú? „Já heldurðu að bróðir sé ekki búinn að festa við mig nýtt viðurnefni,“ segir hann með leyndardómsfullt glott á vörum og á þarna að sjálfsögðu við eldri bróður sinn, Jón Benónýsson, yfirmúrsvín og ferðamálafrömuð frá Hömrum.
„Hann kallar mig skakka Spíra,“ tilkynnir Höddi og ekki er laust við að hann sé stoltur af nafngiftinni. Ritstjórinn hlær við og segir: „Já, þið Hamramenn eruð náttúrlega svo iðnir við spírann.“
„Hvað áttu við?“ Spyr skakki Spíri þá sárhneykslaður og segir: „Þetta er tilvísun í Shakespeare!“