Fálkuorðuhafar ásamt forsetahjónunum á Bessastöðum. Sigrún er sjötta frá vinstri. Myndir er fengin af vef HA
Á laugardag, þjóðhátíðardag Íslands, sæmdi Guðni Th. Jóhannesson forseti fjórtán Íslendinga riddarakrossi við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Auk Sigrúnar hlutu meðal annarra Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari, Róbert Guðfinnsson, forstjóri á Siglufirði, og Jón Kristjánsson, fyrrverandi ráðherra, orðuna. Frá þessu er greint á vef Háskólans á Akureyri.
Sigrún Stefánsdóttir gegndi á árunum 2013-2016 starfi forseta hug- og félagsvísindasviðs við Háskólann á Akureyri. Sigrún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og hefur doktorspróf í fjölmiðlafræði frá Minnesotaháskóla. Hún hefur yfirgripsmikla reynslu úr fjölmiðlum og hefur kennt sem stundakennari við Háskólann á Akureyri í 10 ár.
Þá starfaði Sigrún sem rektor Norrænu endurmenntunarstofnunar blaðamanna auk þess að kenna við Háskóla Íslands. Á árunum 2005-2012 gegndi hún stöðu dagskrárstjóra hjá Rúv.
Frá árinu 2014 hefur Sigrún starfrækt Vísindaskóla unga fólksins við Háskólann á Akureyri. Skólinn nýtur mikilla vinsælda og í ár, þriðja starfsárið, er metþátttaka.
„Ég er afar stoltur af því að fyrrverandi forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri sé sæmdur fálkaorðunni og Sigrún er vel að henni komin. Hún hefur sett svip sinn á háskólann, ekki bara sem kennari og forseti fræðasviðs heldur einnig með reynslu sinni og fagþekkingu á fjölmiðlum. Sem formaður afmælisnefndar Háskólans á Akureyri hefur hún fært viðburði á vegum háskólans nær samfélaginu og hún á stóran þátt í því að gera HA sýnilegri á þessum tímamótum,“ segir Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri.
Orðuhafarnir
- Anna Agnarsdóttir prófessor, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til sagnfræðirannsókna
- Auður Axelsdóttir iðjuþjálfi, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði á vettvangi geðheilbrigðismála
- Bára Magnúsdóttir skólastjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag á sviði danslistar og líkamsræktar
- Eyrún Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, Garðabæ, riddarakross fyrir störf í þágu þolenda kynferðisofbeldis
- Jón Kristjánsson, fyrrverandi ráðherra, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu
- Jónatan Hermannsson, jarðræktarfræðingur og fyrrverandi tilraunastjóri við Landbúnaðarháskóla Íslands, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til kornræktar og íslensks landbúnaðar
- Róbert Guðfinnsson forstjóri, Siglufirði, riddarakross fyrir störf í þágu heimabyggðar
- Sigrún Stefánsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri og fyrrverandi fréttamaður, Akureyri, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskra fjölmiðla og fræðasamfélags
- Sigurbjörg Björgvinsdóttir, fyrrverandi yfirmaður félagsstarfs aldraðra í Kópavogi, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í þágu aldraðra
- Sigurgeir Guðmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar íþróttahreyfingar
- Sigurjón Björnsson, fyrrverandi prófessor og þýðandi, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til sálarfræði og fornfræða
- Tryggvi Ólafsson myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar
- Unnur Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag á vettvangi erfðarannsókna og vísinda
- Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar tónlistar