Semja þarf við staðbundna sálfræðinga

Fangelsið á Akureyri.
Fangelsið á Akureyri.

Tvö ár eru síðan sálfræðingur kom síðast í fangelsið á Akureyri segir formaður Afstöðu. Eins og greint hefur verið frá lést fangi á Sjúkrahúsinu á Akureyri í fyrradag eftir að hafa verið fluttur þaðan frá fangelsinu á Akureyri á laugardag. Lögreglan hefur staðfest að maðurinn hafi tekið eigið líf. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, sem er félag fanga, segir að semja þurfi við staðbundna sálfræðinga í minni fangelsum eins og á Akureyri. 

Nánar er fjallað um málið í Vikudegi sem kom út í gær.

Nýjast