Þorkell Ágústsson hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa segir í skriflegu svari til Vikudags að rannsókn á flugslysinu við akstursíþróttasvæðið á Akureyri árið 2013 sé í forgangi hjá flugsviði nefndarinnar. Ekki sé þó hægt að segja nákvæmlega til um hvenær lokaskýrslan verði klár, hún sé á lokastigi og í meðferð hjá nefndinni. Hins vegar kemur fram í Fréttablaðinu í dag að skýrslan sé væntanleg í vor.
Skýrsla hefur verið væntanleg í að verða tvö ár en helsta ástæða þessarar tafar er sögð sú að ákveðið var að klára rannsókn á öðru slysi fyrst. Vél Mýflugs var að koma úr sjúkraflugi frá Hornafirði til Reykjavíkur 5. ágúst árið 2013 er slysið varð. Á leið aftur til Akureyrar frá Reykjavík brotlenti vélin við akstursbraut Bílaklúbbs Akureyrar. Flugstjóri, flugmaður og sjúkraflutningamaður voru um borð. Flugstjórinn og sjúkraflutningamaðurinn létu lífið en flugmaðurinn slasaðist töluvert.
Rannsókn á hefur ekki leitt í ljós bilun í hreyflum eða stjórnvölum vélarinnar og undanfarið hefur rannsóknin beinst að stjórn vélarinnar í krappri beygju.