Segir allan slagkraft vanta í verkefnið „Brothættar byggðir“

Hrísey
Hrísey

Linda María Ásgeirsdóttir íbúi og vert í Hrísey segir verkefnið „Brothættar byggðir“ sé ekki að skila tilætluðum árangri. „Það er eins og það vanti allan slagkraft í þetta. Fimm milljónir á ári í styrktarfé er einfaldlega ekki nóg ef koma á einhverju í gang. Þetta er tilraunarverkefni og maður hefur það á tilfinningunni að það sé ekkert mikill áhugi fyrir þessu,“ segir Linda í ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði Vikudags. Linda situr í verkefnastjórn vegna Brothættra byggða í Hrísey fyrir hönd íbúa.

Þá segir Linda að aðeins tveir bæjarfulltrúar af ellefu á Akureyri hafi mætt á fund í Hrísey vegna verkefnisins „Brothættar byggðir“ í síðustu viku. Báðir bæjarfulltrúarnir eru í minnihluta bæjarstjórnar. 

„Það mætti engin úr meirihlutanum. Við hlustuðum á upptökur af bæjarstjórnarfundi þar sem Hrísey var til umræðu og þá ætluðu allir að mæta á fundinn,“ segir Linda. Þess ber að halda til haga að á sama tíma var fundur í Hofi um raforkumál í Eyjafirði sem fjöldi bæjarfulltrúa sat.

Spurð hvort Akureyrarbær þurfi að sýna Hríseyingum meiri samstöðu segir Linda að bærinn hafi staðið sig vel að mörgu leyti í gegnum árin. „En núna uppá síðkastið hefur mér fundist vanta meiri stuðning. Okkur vantar að finna það frá bænum hvort það sé virkilega stuðningur frá hans hálfu,“ segir Linda.

Sjá má ítarlegt viðtal við Lindu Maríu í prentúgáfu Vikudags

Nýjast