Gengið hefur verið frá sölu á Keahótelum ehf. Seljendur eru Horn II slhf., Tröllahvönn ehf. og Selen ehf. Kaupandi er fjárfestingafélagið K Acquisitions ehf. en að baki því félagi standa bandaríska fasteignafélagið JL Properties, með 25% hlut, bandaríska eignastýringarfyrirtækið Pt Capital Advisors með 50% hlut og íslenska fjárfestingarfélagið Tröllahvönn með 25% hlut. Tröllahvönn var áður eigandi að 36% hlut í Keahótelum og er því um endurfjárfestingu að ræða að hluta. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í gær.
Sjá einnig: Erlent fjárfestingafélag að kaupa Keahótel
Heildarkaupverðið er 5,5 milljarðar króna, samkvæmt heimildum Vísis. Samkvæmt tilkynningunni hyggjast nýjir eigendur reka fyrirtækið í óbreyttri mynd og Páll L. Sigurjónsson verður áfram framkvæmdastjóri Keahótela.