SAk kemur vel út í Gallupkönnun

Í maí og júní á þessu ári vann Gallup þjónustukönnun fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri þar sem haft var samband við 550 sjúklinga sem höfðu komið á sjúkrahúsið á tímabilinu janúar til maí 2016. Um var að ræða sjúklinga sem höfðu legið á Kristnesspítala, lyflækningadeild eða skurðlækningadeild og var svarhlutfallið 78%.

Í könnuninni var meðal annars spurt um meðhöndlun, hreinlæti, ábyrgð, þekkingu starfsfólks, upplýsingagjöf, meðferð, samvinnu og fæði.

Heilt yfir voru niðurstöðurnar mjög jákvæðar fyrir sjúkrahúsið, heildaránægja sjúklinga mælist há. Sjúklingar gáfu að meðaltali 9 í einkunn þegar spurt var um heildaránægju með upplifun af þjónustu sjúkrahússins á skalanum 0-10, þar af voru 55% sem gáfu einkunnina 10. Gott viðmót og framkoma starfsfólks ásamt góðri umönnun er það sem endurspeglar svör sjúklinga þegar spurt var hvort það hafi verið eitthvað sem viðkomandi var sérstaklega ánægð(ur) með hjá Sjúkrahúsinu Akureyri. Það sem kom lakast út í könnuninni tengdist upplýsingagjöf til sjúklinga og aðstandanda.

Í tilkynningu kemur fram að Sjúkrahúsið á Akureyri vilji veita bestu mögulegu þjónustu á hverjum tíma samkvæmt gæðamarkmiðum. „Einn liður í því að fylgja eftir og tryggja góða þjónustu við sjúklinga er að mæla upplifun þeirra sem á sjúkrahúsið koma. Þannig fást áreiðanlegar upplýsingar um mat sjúklinga á dvöl sinni,“ segir í tilkynningunni.

 

 

Nýjast