Rífandi gangur í Vaðlaheiðargöngum

Mynd/Valgeir Bergmann
Mynd/Valgeir Bergmann

Alls var grafið 88 m í Vaðlaheiðargöngum í síðustu viku. Heildarlengd gangana eru nú 6973 m eða 96,8% af heildarlengd. Eftir á að grafa 233 metra en með sömu framvindu er um þrjár vikur eftir í gangagreftri, segir á Facebook-síðu ganganna. Eyjafjarðarmegin var grafið um 51 m og alls lokið 5.170 m í ágætum jarðfræðilegum aðstæðum. Fnjóskaldsmegin var grafið 37 m og alls lokið 1.803 m, einnig í góðu bergi.

Þá segir að akstur með efni í flughlað á Akureyrarflugvelli sé hafin að nýju og reiknað er með að í þessum áfanga verði keyrt um 5.000 m3 ef efni.

„Með þessu áframhaldi má reikna með að gegnumslagi náist í apríl. Útivinna hefur verið í gangi í Fnjóskadal og má búast við óþægindum fyrir þá sem keyra Illugastaðarveg,“ segir á Facebook-síðu Vaðlaheiðarganganna.

Nýjast