Akureyrarbær ætlar að ráðast í aðgerðir gegn útbreiðslu bjarnarklóar í bænum. Starfsmenn bæjarins eru nú að höggva blómkörfur af plöntunni í bæjarlandinu til þess að koma í veg fyrir að hún fjölgi sér. Brýnt er fyrir íbúum að eyða plöntunni úr görðum hjá sér. RÚV greinir frá þessu.
Bjarnarkló, eða risahvönn, er mjög eitruð planta og safinn úr henni getur valdið bruna á húð ef sólarljós skín á hana. Plöntuna er að finna víða á Akureyri og hefur hún dreift sér töluvert síðan fyrir tveimur árum þegar Náttúrufræðistofnun kortlagði útbreiðslu hennar á Akureyri.
Sjá einnig: Hættuleg planta dreifir sér um Akureyri
Haft er eftir Ingibjörgu Ísaksen, formanni umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar í frétt RÚV að starfsmanni umhverfisdeildar hafi verið falið að útrýma plöntunni. Búið sé að taka blómakörfur af bjarnarklónni og fyrir vikið þroski hún ekki fræ þetta árið.
Þá brýnir Ingibjörg fyrir íbúum að sem hafa plöntuna í görðum sínum að drepa hana. Meirihluti bæjarstjórnar ætlar að ræða í dag hvernig er best að taka á málinu.