Rennibrautirnar opnaðar um miðjan júlí

Rennibrautirnar verða klárar til notkunar um miðjan mánuðinn.
Rennibrautirnar verða klárar til notkunar um miðjan mánuðinn.

Nýju rennibrautirnar sem verið er að reisa í Sundlaug Akureyrar verða opnaðar um miðjan júlí. Nákvæm dagsetning liggur ekki fyrir að sögn Ingibjargar Isaksen formanns umhverfis-og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar en verður auglýst von bráðar. Gert er ráð fyrir því að pottar og aðrar endurbætur á sundlaugarsvæðinu verði klárt um mánaðarmótin ágúst-september.

Alls verðar settar upp þrjár nýjar rennibrautir og stiginn upp í þær tvær stærri verður yfirbyggður. Í staðinn fyrir vaðlaugina kemur tvískiptur pottur þar sem annar hlutinn verður nuddpottur.  Á sama tíma mun allt svæðið vera lækkað í sömu hæð og umhverfi lauganna. Þá verður gert nýtt sólbaðsvæði enda mun turninn koma þar sem sólbaðssvæðið var áður.

Ingibjörg Isaksen segir endanlegan kostnað ekki liggja fyrir en framkvæmdir við rennibrautina sé nokkuð á áætlun. Kostnaðurinn við framkvæmdina er komin upp í tæpar 400 milljónir, sem er tvöfalt hærri upphæð en áætlað var í fyrstu. Vegna viðbótarframkvæmda hefur kostnaðurinn hækkað töluvert. Má þar nefna kaldan pott og leiktæki.

Nýjast