Rekstur Akureyrarbæjar í jafnvægi

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta á fyrri hluta ársins hjá Akureyrarbæ var jákvæð um 96,9 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarafgangur yrði 15,8 milljónir króna á tímabilinu. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar en farið var yfir reksturinn á síðasta bæjarráðsfundi. Afkoma samstæðunnar er því nokkru betri en áætlun gerði ráð fyrir á fyrri hluta ársins.

„Reksturinn er í góðu jafnvægi og jákvætt að sjá að niðurstaðan er betri en áætlanir gerðu ráð fyrir og afkoma í A-hlutanum nokkuð betri en á fyrri hluta árs 2016,“ er haft eftir Guðmundi Baldvini Guðmundsson formanni bæjarráðs á vef Akureyrarbæjar. „Við höfum lagt mikla áherslu á kjörtímabilinu að ná jafnvægi í rekstri A-hluta án þess að það bitni á þeirri þjónustu sem sveitarfélagið er að veita og ánægjulegt að sjá að það er að nást.

Ég hefði að sjálfsögðu viljað sjá tekjur aukast meira en útsvarstekjur okkar eru að hækka nokkuð minna en landsmeðaltal og þá sérstaklega hjá þeim sveitarfélögum sem við berum okkur gjarnan saman við á höfðuborgarsvæðinu. Engu að síður er ég sáttur, afkoman er að batna, veltufé frá rekstri er að aukast, skuldahlutfall að lækka og mér sýnist á öllu að okkur ætli að takast það sem að var stefnt í upphafi kjörtímabils, að skila af okkur betra búi,“ segir Guðmundur Baldvin.

Rekstrarniðurstaða A-hluta á fyrri hluta ársins var jákvæð um 4,9 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstarhalli yrði 188 milljónir króna á tímabilinu. Afkoma A-hluta er því nokkru betri en áætlun gerði ráð fyrir. Tekjur samstæðunnar námu samtals 11.757 milljónum króna en áætlun gerði ráð fyrir að tekjur yrðu 11.625 milljónir króna.

Skatttekjur voru 5.302 milljónir króna sem er 125 milljónum króna umfram áætlun eða 2,36%. Tekjur frá Jöfnunarsjóði námu 1.476 milljónum króna sem er 47 milljónum króna umfram  áætlun. Aðrar tekjur voru 4.978 milljónir króna sem er 41 milljónum króna undir áætlun. Rekstrargjöld samstæðunnar voru samtals 11.178 milljónir króna sem er 180 milljónum króna umfram áætlun eða 1,60%.

Laun og launatengd gjöld námu 6.606 milljónum króna en áætlun gerði ráð fyrir 6.510 milljónum króna. Annar rekstrarkostnaður var 3.606 milljónir króna sem er 11 milljónum króna undir áætlun. Fjármagnsgjöld, nettó, námu 435 milljónum króna sem er 128 m.kr. undir áætlun.

Nýjast