Byggingarnefnd um endurbætur á Sundlaug Dalvíkur fór fram á 15 milljóna króna viðbótarframlag vegna kaupa á rennibraut fyrir sundlaug bæjarins á síðasta fundi í byggðaráði Dalvíkur. Ráðast á í endurbætur á sundlauginni og mælti bygginganefnd með að keypt yrði tvöföld vatnsrennibraut fyrir sundlaugina sem var samþykkt.
Heildarkostnaður með uppsetningu, endurbótum á lóð og á búnaði eru tæplega 50 milljónir króna. Í fjárhagsáætlun 2018 er heimild vegna rennibrautar kr. 35.000.000. Byggðaráð samþykkti á fundinum samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka að upphæð kr. 15.000.000 við fjárhagsáætlun 2018. Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.