Ráðherra fór ekki að ráðleggingum Umhverfisstofnunar

Verðlaunatíkin Bettý, stolt eftir vel unnið starf. Mynd: Hilmar Valur Gunnarsson
Verðlaunatíkin Bettý, stolt eftir vel unnið starf. Mynd: Hilmar Valur Gunnarsson

Um­hverf­is- og auðlindaráðherra hef­ur ákveðið að rjúpnaveiðar verði með sama hætti og fyrir ári síðan þ.e. að leyft verði að veiða rjúp­ur í tólf daga í haust. Veiðidagarnir skiptast á fjór­ar helg­ar, þrjá daga hverja helgi, frá 28. októ­ber n.k. til 20. nóv­em­ber. Leyfi­leg heild­ar­veiði er 40.000 rjúp­ur og gildir sölu­bann áfram.

Þá eru veiðimenn hvatt­ir til að veiða ekki nema 5-6 fugla hver. Vernd­ar­svæði rjúpna verður áfram á Suðvest­ur­landi. Ákvörðun ráðherra er í sam­ræmi við ráðgjöf Nátt­úru­fræðistofn­un­ar Íslands (NÍ) frá 6. sept­em­ber sl. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu.

Um­hverf­is­stofn­un (UST) mælti með því að veiðifyr­ir­komu­lag rjúpu yrði ótíma­bundið í tillögum sem stofnunin sendi ráðherra fyrir skemmstu. Varp­s­tofn rjúpu færi ekki und­ir 90.000 fugla. Færi stofn­inn und­ir þau mörk yrðu veiðar ekki heim­ilaðar fyrr en met­inn varp­s­tofn mæld­ist yfir 100.000 fugl­um. Þá mældi UST með því að leyft yrði að veiða í 18 daga eða sex þriggja daga helg­ar, þ.e. tvær síðustu helgarn­ar í októ­ber og fjór­ar í nóv­em­ber.

Dúi J. Land­mark, formaður Skot­veiðifé­lags Íslands (Skot­vís), er ekki sáttur við vinnubrögð ráðherra og finnst að NÍ hafi seilst inn á verksvið Um­hverf­is­stofn­un­ar varðandi ráðlegg­ing­ar um veiðistjórn­un. Hann vill að ákvörðunin verði tekin til endurkoðunar og vill að ráðherra taki heldur mark á tillögum frá stofnun sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið, þ.e. UST

Í mars síðastliðnum skipaði UST vinnu­hóp til að fara yfir fyr­ir­komu­lag rjúpna­veiða í framtíðinni. Auk UST var NÍ, Skot­vís og Fugla­vernd boðið í hóp­inn sem mótaði til­lög­ur um fyr­ir­komu­lag rjúpna­veiða.

 

Nýjast