Óvíst um áframhaldandi uppbyggingu flughlaðs

Vinna við framkvæmd á nýju flughlaði við Akureyrarflugvöll er stopp og óvíst er með framhaldið.
Vinna við framkvæmd á nýju flughlaði við Akureyrarflugvöll er stopp og óvíst er með framhaldið.

Allt er stopp sem snýr að frekari fjármögnun við gerð nýs flughlaðs á Akureyrarflugvelli og óvíst með framhaldið. Eins og Vikudagur fjallaði um í byrjun árs var ekki gert ráð fyrir neinu fjármagni í verkið í fjárlögum ríkisins fyrir árið 2017.

Í samgönguáætlun sl. haust var gert ráð fyrir um 160 milljónum í verkefnið í viðbót við þær 50 milljónir sem veittar voru í efnaflutninga fyrir um ári síðan. Það náðist hins vegar ekki í gegn í fjárlögum. Fyllingarvinna í nýtt flughlað hófst fyrir um einu og hálfu ári en allt fé í framkvæmdina er uppurið. Nóg er þó af efni til að keyra í flughlaðið.

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í NA-kjördæmi, segir mikla óvissu um framhaldið. „Þetta er mjög bagaleg staða þegar litið er til öryggishagsmuna flugsins hér á landi og atvinnuuppbyggingar á Akureyrarflugvelli,“ segir Njáll Trausti. „Ég hef lagt á það mikla áherslu á undanförnum misserum að kynna mikilvægi þess að alþjóðaflugvallakerfi landsins sé byggt upp með markvissum hætti. Þetta flugvallakerfi byggist upp á fjórum alþjóðaflugvöllum landsins, Keflavíkurflugvelli, Reykjavíkurflugvelli, Egilsstaðaflugvelli og Akureyrarflugvelli. Flugið til og frá landinu hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum en innviðirnir hafa ekki byggst upp í neinu samhengi við þessa miklu aukningu. Það þarf að skoða þessi mál heildrænt og Akureyrarflugvöllur er mikilvægt púsl í því samhengi,“ segir Njáll Trausti.

Akureyrarbær skorar á fjármálaráðherra

Áætlað er að það þurfi 175 þúsund rúmmetra af efni í flughlaðið. Á síðasta bæjarráðsfundi Akureyrarbæjar var rætt um stöðuna á framkvæmd við flughlað á Akureyrarflugvelli. Bæjarráð Akureyrar skorar á fjármálaráðherra og og ríkisstjórn að úthluta fjármagni í fjárlögum til þess að klára flughlaðið við Akureyrarflugvöll.

„Eins og fram hefur komið er stækkun flughlaðsins mikið öryggismál vegna vaxandi flugumferðar til og frá Íslandi, en öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hefur í þessu sambandi bent á mikilvægi Akureyrarflugvallar og Egilsstaðaflugvallar sem varaflugvalla. Þá er flughlaðið grundvöllur vaxandi flugstarfsemi á Akureyrarflugvelli sem mun styrkja og efla atvinnulíf og byggð á Norðurlandi öllu,“ segir í bókun. bæjarráðs.

 

Nýjast