Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps lýsir yfir þungum áhyggjum vegna boðaðra lækkana á verði til sauðfjárbænda í komandi sláturtíð. Í bókun sveitastjórnar segir að verði boðaðar verðlækkanir á afurðaverði til sauðfjárbænda nú í haust að veruleika sé rekstrargrundvöllur sauðfjárbúa í landinu algerlega brostinn.
„Nú, annað árið í röð, standa sauðfjárbændur frammi fyrir verulegri tekjuskerðingu og á komandi hausti af þeirri stærðargráðu að ekkert mun standa eftir af tekjum búanna til greiðslu á launum, þegar kostnaður við framleiðsluna hefur verið greiddur. Laun bænda vegna búrekstrarins verða því engin. Miklir fjárhagsörðugleikar blasa við, sérstaklega skuldsettum bændum. Kemur tekjuskerðing augljóslega harðast niður á þeim sem nýlega hafa byrjað búskap.
Afleiðingarnar verða hrun í búgreininni og í framhaldi af því stórfelld byggðaröskun þar sem sauðfjárrækt er víða undirstaða byggðar. Sauðfjárbúskapur er mikilvæg atvinnugrein í Grýtubakkahreppi og hefur boðuð lækkun á verði til sauðfjárbænda gífurleg áhrif á afkomu margra heimila í Grýtubakkahreppi. Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps skorar á stjórnvöld, forystumenn bænda, sláturleyfishafa og aðra hlutaðeigandi að leita allra leiða til leysa þá grafalvarlegu stöðu sem uppi er,“ segir í bókun.