Orkan hefur safnað 83 tonnum af garðúrgangi

Gámarnir fara ekki framhjá fólki
Gámarnir fara ekki framhjá fólki
Síðastliðin fimm ár hefur Orkan boðið viðskiptavinum sínum upp á að losa garðúrgang sér að kostnaðarlausu á völdum Orkustöðvum í sérstökum móttöku gámum og hafa gámarnir notið mikilla vinsælda. Í upphafi voru gámar á fjórum staðsetningum á suðvesturhorninu en í fyrra bættist Orkustöðin á Mýrarvegi á Akureyri við. Frá árinu 2021 hefur 83,1 tonn af garðúrgangi safnast í móttökugámunum á fimm Orkustöðvum.
 
Um er að ræða lið í umhverfisstefnu Orkunnar sem snýr að því að auðvelda viðskiptavinum að koma efni sem fellur til í daglegu lífi í hringrás endurvinnslu. Allur garðúrgangur sem safnast í ár fer í moltugerð hjá Sorpu. Orkan hefur síðustu ár einnig boðið upp á móttöku á gjafapappír og plasti eftir jólahátíðina og þannig tryggt að hvort tveggja fari í rétta endurvinnslu.
 
Í ár geta viðskiptavinir komið með gras, mold, trjágreinar, blómaafskurð, illgresi og arfa og skilið eftir á eftirtöldum fimm Orkustöðvum, en HP gámar flytja úrganginn síðan í moltugerð hjá Sorpu.
Móttökugámarnir verða á eftirfarandi stöðum og aðgengilegir til 6. september. Á höfuðborgarsvæðinu eru gámarnir staðsettir á Austurströnd, Gylfaflöt, Kleppsvegi og Reykjavíkurvegi.
 
Á Akureyri er gámurinn staðsettur við Mýrarveg. Gámarnir eru aðgengilegir allan sólarhringinn.

Nýjast