Opið hús verður í Grófinni geðverndarmiðstöð í annað kvöld, fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20.00. Sagðar verða tvær reynslusögur fólks sem hefur glímt við geðraskanir og leið þeirra að bata og bættum lífsgæðum. Formaður Grófarinnar mun tala um kvíða, þunglyndi og fíkn og reynslu sína af díalektískri atferlismeðferð; og háskólanemi mun tala um reynslu sína af því að alast upp sem stelpa með ADHD. Opnar umræður verða í kölfarið en með þessum viðburði vill Grófin geðverndarmiðstöð veita almenningi innsýn í veröld fólks sem hefur glímt við geðraskanir og kynna starfsemi Grófarinnar.