Opið hús á Bakka

Hafsteinn Viktorsson, framkvæmdastjóri Pcc BakkiSilicon hf. fræðir áhugasama um starfsemina. Mynd/JS
Hafsteinn Viktorsson, framkvæmdastjóri Pcc BakkiSilicon hf. fræðir áhugasama um starfsemina. Mynd/JS

PCC BakkiSilicon hf. bauð Húsvíkingum og nærsveitungum í heimsókn á starfssvæði fyrirtækisins á Bakka við Húsavík á sunnudaginn var.

Áhugasömum var boðið að kynna sér starfsemina frá kl. 13 til 17, spjalla við starfsfólk fyrirtækisins og þiggja léttar veitingar. Íbúum dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hvamms var boðið sérstaklega í heimsókn í fyrirtækið fyrr sama dag og slóst ritstjóri Skarps með í hópinn. Nánar verður fjallað um þetta í næsta tölublaði Skarps sem kemur út á fimmtudag.

PCC

Nýjast