Mynd af vettvangi. Mynd/Lögreglan
Rétt fyrir hádegi í dag var óskað eftir aðstoð björgunarsveitar í Eyjafirði vegna umferðarslyss við Hörgá, en þar lenti olíflutningabíll á vegriði og vegar salt á brúnni. Björgunarsveitarmenn með búnað til straumvatnsbjörgunar voru sendir á staðinn til þess að vinna að mengunarvörnum. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Uppfært:
Á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir að kl. 10:22 bárust lögreglu upplýsingar um að olíuflutningabíll hefði oltið á hliðina á heimreiðinni að bænum Búðarnesi í Hörgárdal.
"Lögregla fór á staðinn ásamt slökkviliðsmönnum frá Akureyri. Þarna hafði olíuflutningabíll farið á hliðina við brú yfir Hörgá. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, virðist ekki hafa hlotið alvarlega áverka en var fluttur með sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar. Óhappið varð inni á vatnsverndarsvæði Norðurorku í Hörgárdal og var því óttast um tíma að mengunarslys gæti orðið en um 3000 lítrar af díselolíu voru í bílnum.
Til allrar hamingju virðist lítil sem engin olía hafa lekið frá bílnum en þegar þetta er skráð kl. 13:30 er enn verið að vinna við að koma olíuflutningabílnum á réttan kjöl. Að því verki koma slökkviliðið, lögreglan, starfsmenn Norðurorku og menn frá björgunarsveitinni Súlum. Ekki er hægt að fjölyrða um orsakir þessa óhapps á þessari stundu en rannsókn stendur yfir," segir á Facebooksíðu lögreglunnar.