Oddviti Framsóknar hefur ekki rætt við Sigurð Inga

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Skjáskot af RÚV
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Skjáskot af RÚV

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, oddviti Framsóknarflokksins í Norðaustur-kjördæmi og fyrrverandi formaður flokksins, segir að það sé kalt á milli hans og Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns flokksins og forsætisráðherra eftir formannskjörið á sunnudag. Þetta kom fram í viðtali við Sigmundur Davíð í þættinum Bítið á Bylgjunni í morgun. Þar sagði hann jafnframt að hann hafi enn ekki rætt við Sigurð Inga. Sigurður Ingi sagði í Kastljósi að hann hafi sent Sigmundi Davíð skilaboð en þeim hafi ekki verið svarað.

Formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur, Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, fullyrti á dögunum að svindlað hefði verið í formannskjörinu. „Það var þannig að skráðir þingfulltrúar héðan úr Reykjavík voru ekki með kosningarétt þegar allt kom til alls. Ég veit um nokkra sem gátu þar af leiðandi ekki kosið í kosningunum þrátt fyrir að hafa skráð þá inn sem fulltrúa á sérstökum fundi félagsins fyrir flokksþingið. Ég mun kanna hvernig í pottinn er búið og í kjölfarið kalla saman stjórn félagsins í Reykjavík,“ sagði hann.

Sigmundur Davíð vildi ekki fullyrða að þetta ætti við rök að styðjast. Hann kom því þó á framfæri að það hafi birst fólk í Háskólabíó, þar sem þingið var haldið, sem hann hafi aldrei áður séð. Sigmundur sagðist jafnframt hafa furðað sig á því að mörgum hafi verið vísað frá og ekki leyft að kjósa. Sigmundur sagði að það hafi verið vonbrigði að tapa fyrir Sigurði Inga. 

Sigmundur sagðist ætla að halda áfram sem oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi. „Ég ætla að gera það, enda kann ég einstaklega vel við mig hér og með þessu fólki. Þetta er virkilega traust og gott fólk, það er gott að vera kominn austur að hitta það og ég hlakka í rauninni til að geta einbeitt mér að vinna fyrir kjördæmið. Ég ætla að einbeita mér að því núna fyrir þessar kosningar og eftirláta öðrum að ræða stóru myndina,“ sagði Sigmundur.  

 Sigmundur Davíð gaf í skyn að ekki hafi allt verið með felldu á flokksþingi Framsóknarflokksins um helgina og í aðdraganda þess í yfirlýsingu sem hann birtir á Facebook-síðu sinni í gær.

 

 

 

 

Nýjast