Nýtt nám fyrir stjórnendur óháð búsetu

Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, ásamt Skúla Sigurðssyni og Jóhanni Baldurssyni hj…
Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, ásamt Skúla Sigurðssyni og Jóhanni Baldurssyni hjá Sambandi stjórnendafélaga. Mynd/unak.is

Í dag undirrituðu Háskólinn á Akureyri (HA), Starfsmenntasjóður, Samtök atvinnulífsins (SA) og Samband stjórnendafélaga (STF) samstarfssamning um rekstur á Stjórnendafræðslunámi. Námið er á 3. og 4. hæfniþrepi íslenska hæfnirammans um menntun og námslok. Þetta kemur fram á vef HA.

Markmið stjórnendafræðslunámsins eru eftirfarandi:

  • Efla stjórnunarþekkingu og leikni verkstjóra og annarra millistjórnenda í því skyni m.a. að auka framleiðni fyrirtækja, bæta starfsumhverfi, auka starfsánægju starfsmanna og skýra boðleiðir og ábyrgð innan fyrirtækja.
  • Skapa aðstæður og hvetja til frekari þekkingaröflunar stjórnenda og annarra millistjórnenda.
  • Efla skilning á mikilvægi starfa stjórnenda og annarra millistjórnenda.

Til þess þess að geta boðið öllum verkstjórnendum og öðrum millistjórnendum á Íslandi möguleika á að stunda námið óháð búsetu og annarri vinnu er það skipulagt sem sveigjanlegt nám.

Háskólinn á Akureyri kemur að náminu sem rekstraraðili vegna mikillar þekkingar og reynslu sem til er orðin í sveigjanlegu námi við háskólann. Námið mun vera hýst hjá Símenntun HA.

 

Nýjast