Framkvæmdir við byggingu rúmlega þriggja megavatta virkjunar í Glerá á Akureyri eru komnar á fullt skrið. Virkjunin á að geta séð 5.000 heimilum fyrir rafmagni en fyrirhugað er að raforkuframleiðsla hefjist í árslok. RÚV segir frá þessu.
Samningar um að ráðast í framkvæmdirnar voru undirritaðir í september 2013. Lítil virkjun er nú þegar í Glerá en lengi hefur verið rætt um frekari virkjanir í ánni, enda raforkuþörf á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu mikil.
Áætlaður kostnaður við framkvæmdirnar er rúmur milljarður króna. Gert er ráð fyrir að nálægt 200 manns vinni við framkæmdirnar þegar mest lætur.