Mótorhjól mælt á 217 km/klst á Eyjafjarðarbraut

Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði afskipti af 87 ökumönnum hraðakstur í vikunni sem var að líða. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebooksíðu lögreglunnar en þar er jafnframt vakin athygli á því að nú þegar sumarleyfi ná hámarki eykst umferð um vegi landsins í takt við það.

Þá voru 15 umferðaróhöpp skráð og þar af eitt slys þar sem ökumaður lét lífið. Þá vekur lögreglan sérstaka athygli á því að margir mældust á miklum hraða. Nefndar eru tölur eins og 131, 140, 161 og 217 km/klst. En síðast nefnda hraðatalan tilheyrði mótorhjóli sem mælt var á Eyjafjarðarbraut eystri að kvöldi laugardags. Þá er þess getið að sá sem ók á 161 km/klst. Var á fólksbíl og mældist á svipuðum slóðum.

Lögreglan hvetur ökumenn til að virða hraðatakmarkanir svo allir komist á áfangastað. „Breyting virðist vera að eiga sér stað til hins verra í þessum efnum og skorum við því á ökumenn að gefa þessum þætti meiri gaum og fylgja þeim reglum sem gilda um ökuhraða í hvívetna svo allir komist heilir á áfangastað því of hraður akstur er dauðans alvara,“ segir í færslunni.

Nýjast