Minningarathöfn í Hrísey í kvöld

Hrísey
Hrísey

Minn­ing­ar­at­höfn verður hald­in klukk­an 18.00 í Hrís­eyj­ar­kirkju í kvöld þar sem fjöl­skyld­unn­ar sem fórst á Árskógs­sandi á föstu­dags­kvöld verður minnst. Greint er frá þessu á mbl.is.

Talið er að for­eldr­ar með ungt barn hafi verið á leiðinni í Hrís­eyj­ar­ferj­una Sæv­ar þegar bíll þeirra fór í sjó­inn við ferju­bryggj­una síðdeg­is á föstu­dag með þeim af­leiðing­um að þau lét­ust. Ekki er unnt að greina frá nöfn­um þeirra að svo stöddu.

Sókn­ar­prest­ur­inn Magnús S. Gunn­ars­son seg­ir á vef mbl.is að margir séu í áfalli vegna at­viks­ins en með hon­um í kvöld verði áfallat­eymi frá Rauða kross­in­um.

Nýjast