Minjasafnið á Mánárbakka: Öskubakkaundirskál!

Dæmi um óvenjulega muni á Mánárabakkasafni, sem vitna um horfin viðhorf. Bolli, undirskál og þarfaþi…
Dæmi um óvenjulega muni á Mánárabakkasafni, sem vitna um horfin viðhorf. Bolli, undirskál og þarfaþingið þá, áfastur öskubakki! Er þetta einhversstaðar enn til á betri heimilum? Það er Aðalgeir Egilsson, safnari, frumkvöðull og safnvörður sem heldur á gripnum. Mynd: JS

Síðustu áratugir hafa verið tími mikilla breytinga og Íslendingar hafa færst með ógnarhraða inn í nútímann. Á þeirri vegferð hafa margir munir úr daglegu lífi fólks hafnað í glatkistunni.

Á Mánárbakka á Tjörnesi hefur ótölulegum fjölda muna verið safnað saman og þeir varðveittir. Árið 1994 var gamalt hús, Þórshamar, flutt frá Húsavík að Mánárbakka og hýsir það nú líka þetta merka minjasafn. Einnig var byggður lítill torfbær sem geymir hluta safnsins. Í safninu er að finna muni sem spanna mannvist á Íslandi frá því á landnámsöld og fram á þá 21.

Þar er ekki síst að finna muni sem algengir voru á heimilum landsmanna en nú víðast löngu horfnir, muni sem vekja upp oft ljúfsárar minningar og framkalla sögur úr fortíðinni.

Aðalgeir Egilsson bóndi, sem safnaðið mununum og byggði safnið upp, hefur unnið ómetanlegt menningarstarf og enginn verður svikinn af heimsókn á Mánárbakkasafnið.

Safnið á Mánárbakka verður opnað gestum í júní n.k. JS

 

Nýjast