Í síðustu viku fór af stað undirskriftasöfnun á Húsavík þar sem þess var krafist að Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri með meiru, skili málverkum þeim sem keypt voru fyrir almannafé og honu gefin. Texti undirskriftalistans er eftrfarandi:
Á tímum aðhalds og sparnaðar gerist sá fáheyrði atburður að einum embættismanni íslensku þjóðarinnar, Jóhannesi Nordal, eru færðar tvær málverkagjafir að upphæð krónur 480 þúsund. Um leið og við undirritaðir hörmum að opinberar stofnanir ( Seðlabankinn og stjórn Landsvirkjunar) sjái sér fært að verja rúmum þrennum árslaunum verkamanns í gjafir handa einum einstaklingi skorum við á Nordal að skila aftur þessum gjöfum og að andvirði gjafanna verði notað til að fylla upp í fjárlagagat ríkisstjórnarinnar. Allt tal um sparnað og aðhald í ríkisbúskapnum er marklaust ef embættismenn í þjónustu hins opinbera sjá ekki sóma sinn í að afneita slíkum gjöfum.
Að sögn Arnars Björnssonar, eins af aðstandendum listans hefur söfnunuin gengið ljómandi vel og í gær höfðu um 300 manns skrifað nöfn sín á listann á Húsavík. Þá voru enn fremur listar í gangi í Mývatnssveit og á Tjörnesi og í Mývatnssveit höfðu rúmlega 40 manns skrifað sig í gær.
Það er ljóst að undirskrifendur eru úr öllum flokkum. Flestir þeirra gefa þá skýringu á undirskrift sinni að það sé hrein og klár ósvífni við almenning að bruðla svo með almannafé, á sama tíma og ráðamenn krefjast þess að fólk spari og fjöldi heimila berst nú í bökkum við að láta enda ná saman.
Undirskriftasöfnuninni lýkur annað kvöld.
- Víkurblaðið, 22. maí 1984.