Akureyrarbær þarf að greiða alls sjö milljónir króna í dómsmáli íþróttakennara við Lundarskóla. Í minnisblaði frá Karli Frímannssyni fræðslustjóra Akureyrarbæjar segir að sú upphæð byggi kröfuútreikningum, byggðum á bótakröfum og matsgerð dómkvaddra matsmanna, málskostnaði og lögfræðikostnaði. Fræðsluráð hefur samþykkt að vísa óskinni um viðauka til bæjarráðs.
Forsaga málsins er sú að í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra var Akureyrarbær dæmdur til að greiða íþróttakennara skaðabætur þar sem ljóst þykir að raddbönd hennar hafi skaddast varanlega við íþróttakennslu. Akureyrarbæ var gert að greiða stefnanda rúmlega 160 þúsund krónur með vöxtum og rúmar 2 milljónir í málskostnað.
Í starfi sínu sem íþróttakennari við Lundaskóla varð stefnandi í málinu fyrir skaða á raddböndum vegna ófullnægjandi aðbúnaðar við íþróttakennslu í KA-heimilinu á tímabilinu 26. september 2011 til 5. október sama ár. Í dómsúrskurði segir að stefnandi í málinu hafi starfað sem íþróttakennari við Lundarskóla í um 20 ár.
Sumarið 2011 var ráðist í framkvæmdir í KA-heimilinu þannig gamalt gólf var rifið upp og nýtt lagt. Segir í skýrslu stefnanda að í húsinu hafi verið lyktarmengun, mikið ryk og hávaði eftir framkvæmdir. Aðrir íþróttakennarar tóku undir þær lýsingar. Segir stefnandi að rödd hennar hafi brostið þann 5. október 2011 er hún var að útskýra leik fyrir nemendum.
Hefur stefnandi verið í raddmeðferð síðan sem ekki hefur skila fullnægjandi árangri.