Alla miðvikudaga í september mun Ferðafélag Íslands standa fyrir lýðheilsugöngum um allt land. Göngurnar eru hluti af afmælisdagskrá FÍ en félagið fagnar 90 ára afmæli á árinu. Göngurnar hefjast kl. 18:00 alla miðvikudaga vítt og breitt um landið og er fyrsta gangan 6. september. Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mín. Tilgangurinn með verkefninu er að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.
Almenningi gefst einnig kostur á að skrá sig í lukkupott sem dregið verður úr í október og geta heppnir göngugarpar hreppt glæsilega vinninga.
„Reimið á ykkur gönguskóna, komið út að ganga á miðvikudögum í september og njótum náttúrunnar í sameiningu. Þátttaka er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir,“ segir í tilkynningu.