Í síðasta mánuði var lögreglumaður stunginn með notaðri sprautunál í miðbæ Akureyrar. Ung kona í fíkniefnaneyslu réðist á lögreglumanninum þegar hann hugðist hafa afskipti af henni. Hún sló til lögreglumannsins sem bar fyrir sig hendinni og kom þá í ljós að Konan reyndist hafa haldið á sprautunál sem stakkst í hönd lögreglumannsins.
Ekki hefur komið fram hvort konan hafi verið smituð af sjúkdómum svo sem HIV eða lifrarbólgu C, en grunur leikur þó á að hún sé smituð af þeim síðarnefnda. Beðið er eftir niðurstöðu blóðrannsóknar. Málið er til rannsóknar hjá héraðssaksóknara.
Vísir greindi fyrst frá.